FRÁ SKAGANUM. FYRIR LJÓSVAKANN.

Útvarpsforrit
fyrir þína stöð.

Þín tónlist. Þín dagskrá. Þitt stúdíó.
Prófaðu hljóðver, streymi og upptökur frítt í 30 daga — áður en þú ákveður þig.

ÖLL ÞRJÚ FORRITIN120.900 ISKán VSK · ótímabundið notkunarleyfi

Windows 10 / 11 · Íslenska sjálfgefið · Útgáfa 2.94

SKAGA PLAY · HLJÓÐVERIÐ ÞITTÍ ÚTSENDINGU
SPILUN · DAGSKRÁ · STREYMIÞÍN STÖÐ. ÞÍN STJÓRN.
HUGSAÐ FYRIR BEINA ÚTSENDINGU01 / STJÓRN Á HLJÓÐINU

ÞÍN STÖÐ. ÞÍN FORRIT.

Þrjú forrit.
Þín stöð.

Byrjaðu á 30 daga prufu eða veldu pakkann sem hentar þér. Ótímabundið notkunarleyfi og uppfærslur fyrstu 12 mánuðina innifaldar.

Öll verð eru án VSK. VSK bætist við þar sem við á og er staðfestur við afgreiðslu. Verð í öðrum gjaldmiðlum er áætlað viðmið; endanlegt verð og greiðslufyrirkomulag eru staðfest áður en gengið er frá kaupum.

Uppfærslur fyrir allan pakkann má endurnýja í 12 mánuði fyrir 24.900 kr. án VSK. Endurnýjun er valfrjáls; keypt útgáfa heldur áfram að virka.

Viðmiðunargengi ECB: 2026-11-02.

Kaup fara fram með kaupbeiðni sem útgefandi afgreiðir sjálfur. Engin kortagreiðsla fer fram á þessari síðu.

SKAGA PLAY · RADIO AUTOMATION SOFTWARE

Útvarpsforrit fyrir spilun,
dagskrá og streymi.

Skaga Play er íslenskt útvarpsforrit fyrir Windows sem sameinar tónlistarspilun, sjálfvirka dagskrá, jinglaborð og Voice Track. Raðaðu lögum í lagalista, stilltu lagaskipti í Sequence og stjórnaðu beinni útsendingu úr Hljóðverinu.

Streymi Þjónusta tengir stöðina við SHOUTcast eða Icecast og getur líka notað innbyggðan útvarpsþjón. Upptöku Forrit vistar þætti og útsendingar samkvæmt upptökudagskrá. Prófaðu forritin frítt í 30 daga og veldu síðan einstakt forrit eða allan pakkann.

Radio automation software — explore Skaga Play in English ↗

ALLT INNAN SEILINGAR

Þinn staður
í loftinu.

Spilunarröð, gagnasafn, jinglar og hljóðpunktar. Settu spjöldin þar sem þau henta þér og færðu þau á annan skjá þegar þú þarft meira rými.

SKAGA PLAY / STÚDÍÓ● SÝNISHORN

Raunverulegt viðmót Skaga Play. Tónlist og spilunarröð á myndinni eru sýnigögn.

01Raðaðu með því að draga
02Stjórnaðu lagaskiptunum
03Nýttu fleiri skjái

FRÁ SAFNI AÐ ÚTSENDINGU

Minna umstang.
Meira útvarp.

♫01

Safnið þitt. Tilbúið.

Flyttu inn möppur, greindu hljóð og veldu mörg lög með Ctrl eða Shift. Skrunaðu um safnið án síðuskipta.

LögJinglarAuglýsingar
◷02

Dagskrá sem heldur áfram.

Auto sækir efni úr dagskránni. Settu klukkur á marga daga og tíma og dragðu atriði til að breyta röð þeirra í tímaklukkunni.

≋03

Rétti punkturinn.

Stilltu Upphaf, Mix In, Mix Out, Intro, Hook og Lok. Sequence-breytingar vistast á lagið í safninu.

⌁04

Út fyrir stúdíóið.

Sendu út á innbyggðum þjónum, SHOUTcast eða Icecast. Veldu inntak, port og slóð streymis og haltu forhlustun aðskildri.

FFmpeg fylgir uppsetningunni og er valið sjálfkrafa.

RÝMI FYRIR ÞÍNA VINNU

Einn skjár?
Eða tveir.

Dragðu spjöld, breyttu stærð frá hliðum og hornum og vistaðu uppsetninguna þína. Þegar fleiri skjáir eru tengdir velurðu á hvaða skjá aukaglugginn opnast. Færðu spjöld milli glugganna og breyttu stærð þeirra á hvorum skjá.

Spilunin heldur áfram í aðalforritinu meðan þú raðar vinnusvæðinu.

SKAGA PLAY 2.94

Áfram í
rétta átt.

Forritið lætur vita þegar ný útgáfa er komin. Sjáðu hvað breytist, sæktu uppfærsluna og veldu hvenær hún er sett upp.

Áður en uppfærsla hefst birtist viðvörun. Forritið lokar sér og opnast aftur eftir uppsetningu. Útsending stöðvast á meðan.

NÝJAST24. október 2026

Útgáfa 2.94

  • Nýr samhæfingarhamur fyrir skjáteikningu notar --disable-direct-composition án þess að slökkva á allri GPU-hröðun. Markmiðið er að komast hjá hvítu heilgluggablikki í samsetningu Windows/WebView2.
  • Óbreyttar streymisstöður endurbyggja ekki lengur takka og lista, hvorki í aðalglugga né innbyggðri Streymiþjónustu. Óbreytt spjaldaskipan er ekki endurstillt við hverja almenna uppfærslu.
  • Villuskýrsla inniheldur skjáham, WebView2-útgáfu, atvik úr skjáferlum og teljara viðmóts. Hljóðleið, AutoGain og spilunarstýring eru óbreytt.
Sækja nýjustu útgáfuna ↗
Skoða alla útgáfusöguna

ÖLL FORRITIN Á EINUM STAÐ

Prófaðu frítt
í 30 daga.

Veldu forrit hér fyrir neðan eða sæktu öll þrjú í einni uppsetningu. Hvert forrit hefur sitt eigið leyfi og 30 daga prufu.

Sækja öll forritin saman ↓

Skaga Play

Hljóðver, lagasafn og sjálfvirk útsending. Uppsetningin inniheldur einnig streymi og upptöku.

30 daga prufaSækja Skaga Play ↓

Streymi Þjónusta

Sendu út á innbyggðum staðbundnum þjóni, SHOUTcast eða Icecast. Virkar líka sjálfstætt.

30 daga prufaSækja Streymi Þjónustu ↓

Upptöku Forrit

Taktu upp úr stúdíóinu eða af hljóðkorti í WAV eða MP3. Veldu gæði og vistunarmöppu.

30 daga prufaSækja Upptöku Forrit ↓

Útgáfa 2.94 · Windows 64 bita · Windows uppsetning

Windows 10 eða 11.NET Framework 4.8Microsoft Edge WebView2

Kaupa öll þrjú saman Kaupa einstakt forrit

Að prufu lokinni þarf leyfislykil. Venjuleg enduruppsetning endurnýjar ekki prufuna. Fullar útgáfur og leyfislyklar eru í innskráðum notandahluta.

SPURNINGAR OG SVÖR

Gott að vita
fyrir útsendingu.

Hvernig set ég forritin upp?+

Veldu 30 daga prufu hér á síðunni. Skaga Play uppsetningin inniheldur öll þrjú forritin; Streymi Þjónustu og Upptöku Forrit má líka sækja og setja upp sér. Windows biður um stjórnandaréttindi við uppsetningu.

Koma öll forritin með prufunni?+

Já. Sameinaða uppsetningin inniheldur Skaga Play, Streymi Þjónustu og Upptöku Forrit. Hvert þeirra hefur eigin 30 daga prufu og eigið leyfi. Venjuleg enduruppsetning byrjar prufuna ekki aftur.

Hvernig kaupi ég eitt forrit eða allan pakkann?+

Sendu kaupbeiðni í notandahlutanum og veldu eitt forrit eða pakkann með öllum þremur. Útgefandi afgreiðir beiðnina sjálfur og úthlutar leyfi og niðurhalsaðgangi. Verð og greiðsla eru staðfest við afgreiðslu.

Hættir forritið að virka þegar uppfærslutímabilinu lýkur?+

Ótímabundið keypt notkunarleyfi heldur áfram að virka. Þegar uppfærslutímabilinu lýkur færðu ekki nýjar uppfærslur fyrr en rétturinn er endurnýjaður. Gildistími leyfis og uppfærsluréttur sjást í notandahlutanum.

Þarf ég nettengingu til að virkja leyfið?+

Ný netvirk leyfi eru staðfest á vefnum og geta haft tölvuhámark. Staðfesting gildir í allt að 30 daga án sambands og er endurnýjuð þegar samband næst. Áður staðfest keyrsla er ekki stöðvuð vegna sambandsleysis. Þú getur skoðað og losað eigin virkjanir í notandahlutanum.

Þarf ég að setja FFmpeg upp sjálfur?+

Nei. FFmpeg fylgir uppsetningum allra forritanna og er valið sjálfkrafa. Leyfi og upplýsingar um uppruna fylgja með.

Get ég sent út án þess að Skaga Play sé opið?+

Já. Streymi Þjónusta getur keyrt sjálfstætt með hljóðkorti, Windows-hljóði eða hljóði úr völdu opnu forriti á studdum Windows-útgáfum. Stúdíó mix krefst þess að Skaga Play sé opið. Forritssértæk hljóðtaka krefst Windows 11 eða Windows build 20348 eða nýrra.

Get ég haft fleiri en einn streymisþjón?+

Já. Þú getur búið til fleiri en eitt staðbundið streymi, valið laust port fyrir hvern þjón og stillt slóð eins og /minstod. Núverandi þjónar halda sínum portum. Aðgangur utan staðarnets getur krafist stillinga í beini og eldvegg.

Í hvaða snið get ég tekið upp?+

Upptöku Forrit vistar WAV eða MP3. Veldu MP3-gæði frá 64 til 320 kbps og vistunarmöppu í Stillingum. Stúdíó mix tekur úr Skaga Play; önnur inntök leyfa upptöku af völdu hljóðkorti eða Windows-úttaki.

Get ég gert Voice Track í Skaga Play?+

Já. Notandi með heimild til að breyta safninu getur tekið upp hljóðnema, gert hlé og forhlustað. Upptakan vistast sem WAV í Talupptökur og má setja í spilunarröð eða lagalista. Stilltu hana síðan í Sequence eins og annað hljóð. Hámark er 15 mínútur á upptöku. Þetta er hluti af Skaga Play.

Get ég talað í hljóðnema án hljóðblandara?+

Já. Veldu hljóðinntak í Hljóðverinu, virkjaðu hljóðnemann og notaðu Push to talk eða Lock to talk. Hægt er að stilla styrk hljóðnemans. Mute Studio þaggar aðeins niður staðbundna hlustun, en hljóðið fer áfram í streymið.

Hvar eru lögin og stillingarnar mínar?+

Safnið og stillingarnar eru geymd í notandasvæði Windows á tölvunni þinni. Innflutt hljóð er vistað í safni forritsins. Þú getur skipt um skrá í lagaritli, óvirkjað lög og flutt út safngögn í Stillingum. Útflutningur safngagna inniheldur ekki sjálfar hljóðskrárnar.

Hvernig virka uppfærslurnar?+

Forritin athuga uppfærslur sjálfkrafa þegar sjálfvirk athugun er virk og uppfærsluréttur er í gildi. Þú getur líka athugað undir Uppfærslur. Undirskrift og prófsumma eru staðfest fyrir uppsetningu. Forritin loka sér við uppfærslu og útsending getur stöðvast á meðan.

Skaga Play